4AB
Myndasíður
22.08.2005 13:52:52 / 4ab2000

Sumarið

Jæja já, það er naumast hvað þetta sumar hefur liðið hratt. Ég hef nánast ekkert verið heima hjá mér síðasta mánuðinn, búin að vera á flakki út um allt. Hvað eru þið búin að vera að brasa í sumar? Er ekki eitthvað að frétta af t.d. Sibbu og bumbunni, hvernig var brúðkaupið, eitthvað spennandi slúður o.s.frv...

En nú líður að hausti og þar með afmælinu mínu og útskrift hjá Jens. Við ætlum að halda upp á það með því að fara í Leyningshóla, heilgrilla lamb, reyna að redda gufubaðstjaldi og hafa brjálæðislega gaman. Það eru allir velkomnir! Það þarf bara að mæta með svefnpoka, tjald (eða lauma sér inn hjá einhverjum öðrum), drykkjarföng og góða skapið. Ég er búin að senda inn umsókn um gott veður svo að það er ljóst að ekkert á eftir að klikka! Ég er allavega strax farin að hlakka til!

Svo að látið endilega sjá ykkur!

Anna Ey


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.07.2005 09:18:03 / 4ab2000

Versló

Hvert er stefnan tekin um helgina? Allavega, þar sem ég er bara í fríi eitt kvöld þessa versló þá er stefnan að sjálfsögðu tekin á NÝDÖNSK á Oddvitanum!! Ef marka má síðustu versló þá verður dúndurstuð.

En að öðrum fréttum, fyrir þá sem ekki vita, þá er hún Lóa núna orðin gift kona:D Brúðkaupið var algjör snilld, en partíið hjá okkur "einhleypu" stelpunum eftir brúðkaupið var ennþá meiri snilld! Ef þið viljið vita meira kíkið þá á myndasíður hjá katalitla.blogspot.com og blog.central.is/birnabald


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.06.2005 10:34:35 / 4ab2000

Gjaldkerinn

Ok, viljiði skyggnast aðeins inn í líf gjaldkerans? Jæja, ég ætla samt að koma með eina sögu. Held nebblega að ég hafi lent í einni verstu aðstöðu sem gjaldkeri getur lent í, það var í gær. Ég var í síðasta mat, sem þýðir kl.12:30. Kl.12:28 lenti ég í vesenis afgreiðslu sem stóð yfir í 25 mín. Þá var ég ekki bara orðin ruuusalega svöng og pirruð heldur var ég líka (viðkvæmir strákar ekki lesa lengra) á túr, ekki bara það heldur líka á fyrsta degi túrs! Þegar afgreiðslan var búin varð ég að ganga frá peningaseðlunum sem lágu á víð og dreif um allan bás því ég var ekki búin að ganga frá innleggi sem ég hafði tekið að mér klukkutíma áður. Náði að troða peningunum í kassann en hvað kemur þá í ljós? Innleggið passar ekki! Í angist minni bið ég aðra stelpu að hringja í viðkomandi fyrirtæki að leita ráða og fer á meðan niður í langþráða klósettpásu. Þá er klukkan orðin eitt, örugglega búið að ganga frá matnum uppi í mötuneyti (matráðskonan er í fríi og afleysingarkonan er ekki beint með allt á hreinu), nennti allavega ekki að skokka upp á 4.hæð bara til að tékka á því og fór því út í bakarí til að kaupa mér langloku með kalkúnaáleggi-þið vitið frá mat og mörk-ógeðslega gott. En nei, það var bara til með sinnepssósu og rækjulangloka, þannið að ég fékk mér pizzasnúð. Þegar matarhléð var búið þurfti ég að fara aftur í gegnum risahauginn af peningaseðlunum sem komu í innlegginu og skoða hvort þeir væru nógu góðir til að fara aftur út í "umferðina" eða hvort þeir þyrftu að fara í "ruslið" (með því meina ég að sjálfsögðu að stinga í eigin vasa). Þetta tók allavega klukkutíma í viðbót - með afgreiðslum auðvitað. Þetta er samt eina leið gjaldkerans til að finna til valds síns, að ákveða hvort seðlar með kaffiblettum og horklessum séu nógu lítið ógeðslegir til að fara aftur út til almennings...hehehe, ok sorglegt ég veit. Kv.Harpa Björk.

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.06.2005 23:04:45 / 4ab2000

Flott hjá þér Anna

Djöfull ertu dugleg Anna.......... cool að við séum komin með síðu ! :lol:

Ég vil líka segja takk fyrir síðast við yklkur öll.....það var BARA GAMAN verst að ég náði nú ekki að spjalla við ykkur eins mikið og ég hefði viljað var svo upptekin af að dansa nefnilega !

En HEI !!!!!bannað að setja svona asnalegar myndir af manni hér inn ....... pant ritskoða fyrst. 8|

En jæja.......................... ef þið eruð með partý í júlí fyrir sunnan þá pant fá að koma og djamma með ykkur.....kem kannski suður því ég er í 2 vikna sumarfríi sko því leikskólinn er lokaður.

Sjáumst vonandi sem fyrst kv. Lísa


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.06.2005 17:28:00 / 4ab2000

örstutt innslag

Hæ hæ öll sömul!

Ég vildi endilega segja ykkur að ég er með netfangaskrá bekkjarins ásamt símanúmerum flestra í excel skjali ef þið viljið að ég sendi ykkur það! Annars getið þið að sjálfsögðu notað bréfin sem ég sendi ykkur og sett "svara öllum" ef senda á hóppóst um bekkinn :lol: Vona að sem flestir taki þátt í þessu verkefni því það er ekkert leiðinlegra en að missa samband við gamla vini!

kv.

Lára


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.06.2005 23:23:00 / 4ab2000

Ný síða

Hæ allir

Takk kærlega fyrir frábært kvöld.

Við Lísa vorum að spjalla um þetta allt saman og við vorum sammála um að við séum ekki nógu góð að halda sambandi hvort við annað. Lísa stakk upp á sameiginlegri bloggsíðu sem ég bauðst svo til að útbúa. Er ekki líklegt að við höldum betur sambandinu með þessu?

Er búin að setja myndirnar sem ég tók í partýinu og í höllinni á síðu. Skoðið þær endilega (tengill vinstra megin á síðunni)

Verið endilega dugleg að skrifa! Jafnvel bæta við tenglum eða myndasíðum!

Kveðjur

Anna Ey


» 2 hafa sagt sína skoðun